Óhapp við flutning hræja til brennslu vegna riðu

Í gær kom upp atvik við flutning á riðusmituðum úrgangi sem flytja átti til brennslu í Kölku á Suðurnesjum en samkvæmt frétt á Mast.is myndaðist mikill þrýstingur af völdum gasmyndunar úr úrganginum í einum gámnum á meðan á flutningi stóð. Varð það til þess að hleri á ofanverðum gámnum gaf sig en atvikið uppgötvaðist áður en komið var að Hvalfjarðargöngum.

„Stöðvað var tvisvar á leiðinni áður en atvikið átti sér stað til að kanna ástand gáma sem var í lagi. Ekki var meira magn af hræjum í gámnum en tíðkast við flutning á riðusmituðum úrgangi. Atvikið var strax tilkynnt til Matvælastofnunar sem ákvað að stöðva flutning. Í kjölfarið var ástand gámanna kannað á gámaþjónustusvæði á Akranesi og hluta farmsins umhlaðið í annan gám áður en flutningur hófst að nýju. Við umhleðslu heltist niður blóð og annar vökvi úr farminum,“ segir í frétt Matvælastofnunarinnar en þrif og sótthreinsun svæðisins á Akranesi þar sem umhleðsla átti sér stað er nú lokið.

Fram kemur að jarðvegsskipti munu fara fram í þeim tilgangi að fjarlægja smitefnið eins og kostur er og verður svæðið í framhaldinu girt af í varúðarskyni til að fyrirbyggja smit í sauðfé.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir