Óheimil heilsufullyrðing um lýsi

Matvælastofnun hefur gefið Lýsi hf. fyrirmæli vegna notkunar heilsufullyrðinga við markaðssetningu fæðubótarefnisins „Fríar fitusýrur og þorskalýsi“. Tilefni fyrirmælanna er að við markaðssetningu fyrirtækisins var gefið til kynna að neysla vörunnar gæti verið gagnleg við að eyðileggja hjúpaðar veirur, s.s. herpes, RS og kórónaveirur, og fyrirbyggja smit.

Á Mast.is kemur fram að Lýsi hf. hafi upplýst Matvælastofnun um að fyrirtækið hafi hætt kynningu á vörunni á vef sínum og upplýst söluaðila um að þeim beri að fjarlægja slíkt kynningarefni.

Samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu MAST má einungis nota heilsufullyrðingar við markaðssetningu matvæla sem eru á lista Evrópusambandsins yfir leyfilegar fullyrðingar og gildir sá listi einnig hérlendis. Upplýsingar sem gefa til kynna að neysla matvöru hafi áhrif á heilsu er heilsufullyrðing í skilningi laganna, hvort sem upplýsingarnar komi fram á matvörunni sjálfri eða eru notaðar við markaðssetningu hennar.

 

Þá kemur einnig fram að Matvælastofnun hafi nýlega varað við vörum sem eiga að styrkja ónæmiskerfi líkamans og koma í veg fyrir sýkingar, m.a. af völdum kórónaveira, Sjá HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir