Rekstrargrundvöllur margra fyrirtækja horfinn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV. Mynd:ssnv.is
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV. Mynd:ssnv.is

Rekstrargrundvöllur margra fyrirtækja á Norðurlandi vestra er horfinn vegna kórónuveirufaraldursins þar sem ferðaþjónustan skipar stóran sess í rekstrinum segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, í samtali við Ríkisútvarpið í morgun. Hún segir annan aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar nokkur vonbrigði fyrir fyrirtæki á svæðinu. Samtökin hafa sjálf reynt að bregðast við með fjárframlagi.

Unnur segir að áhrifin á atvinnulifið séu það sem valdi mestum áhyggjum nú. „Okkar svæði er samsett af mörgum smærri fyrirtækjum en það eru fá stór. Útlitið versnar með hverjum deginum og það eru einhverjir sem eru að velta fyrir sér að loka og leggjast í híði.“ Hún segir að á svæðinu  bitni ástandið verst á ferðaþjónustunni en söfn og setur á svæðinu hafi engan rekstrargrundvöll án ferðamanna og það smiti svo út frá sér í samfélagið.

„Flest allir sem við höfum heyrt í undanfarnar vikur eru að nýta sér hlutabótaleiðina og bundu vonir við aðgerðir sem kynntar voru fyrir nokkrum dögum, sem mörgum fannst nokkur vonbrigði. Það hefði þurft að vera mun skýrari stuðningur við ferðaþjónustuaðilana sem eru ekki bara að sjá einhverja skerðingu á sinni starfsemi heldur verði í mörgum tilvikum hreinlega að loka. Svo er óvissan sem er enn, að vita ekki hvernig flæði verður stýrt inn í landið á næstu mánuðum. En vonandi fer sú óvissa að verða út úr myndinni,“ sagði Unnur.

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa sjálf reynt að bregðast við með fjárframlagi og leituðu eftir hugmyndum hvernig best megi nýta það til stuðnings og uppbyggingar á svæðinu. 50 milljónir króna voru settar í pott til að fara út í aðgerðir en Unnur segir þá upphæð duga skammt fyrir fyrirtækin á svæðinu sem eru í vanda stödd.  

„Mitt fólk hefur verið að hringja í fólk og það hafa verið löng símtöl. Ég upplifi það ekki þannig að fólk sé að bugast. Þeir sem við höfum rætt við enda allir símtölin á því að við komumst í gegnum þetta. En eðlilega er þreyta í fólki eftir þennan erfiða vetur og þessar hörmungar sem hafa riðið yfir núna,“ sagði Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV, í Morgunþætti RÚV í morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir