Samanburður á orkukostnaði heimila árið 2023

Snippuð mynd af heimasíðu Byggðastofnunar.
Snippuð mynd af heimasíðu Byggðastofnunar.

Á heimasíðu Byggðastofnunar segir að líkt og undanfarin ár hefur stofnunin fengið Orkustofnun  til að reikna út kostnað á ársgrundvelli, við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni, á flestum þéttbýlisstöðum og í dreifbýli. Viðmiðunareignin er einbýlishús, 140 m² að grunnfleti og 350m³. Almenn raforkunotkun er sú raforka sem er notuð í annað en að hita upp húsnæði, s.s. ljós og heimilistæki, en miðað er við 4.500 kWst í almennri rafmagnsnotkun og 28.400 kWst við húshitun án varmadælu en 14.200 kWst með varmadælu.

Nú er komin út skýrsla um orkukostnað heimila m.v. gjaldskrár 1. september 2023. Alls eru 91 byggðakjarni í greiningunni og ná tölur fyrir þá aftur til ársins 2014. Samhliða skýrslunni kemur út mælaborð þar sem hægt er að skoða orkukostnað í byggðakjörnum á Íslandskorti, skoða raforku- og húshitunarkostnað sér og bæta við útreikningi fyrir varmadælu fyrir staði með beina rafhitun.

Raforka
Lægsta mögulega raforkuverð fyrir viðmiðunareignina, með flutnings- og dreifingarkostnaði, fæst hjá Veitum á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi, um 87 þ.kr. Hæsta gjald í skilgreindu þéttbýli er um 107 þ.kr. hjá Orkubúi Vestfjarða en raforkuverð eru hærri í dreifbýli, hjá RARIK og Orkubúi Vestfjarða, eða um 116-120 þ.kr. á ári fyrir viðmiðunareign. Lægsta mögulega raforkuverð fyrir viðmiðunareign var töluvert hærra í dreifbýli en í þéttbýli fram til ársins 2021, þegar bilið þar á milli minnkaði mikið vegna aukins dreifbýlisframlags til jöfnunar dreifikostnaðar raforku í dreifbýli.

Húshitun
Þegar kemur að húshitunarkostnaði er munurinn á milli svæða mun meiri en á raforkuverði. Lægsti mögulegi kostnaður þar sem húshitun er dýrust er um þrefalt hærri en þar sem hún er ódýrust. Húshitunarkostnaður hefur undanfarin ár verið hæstur á stöðum þar sem þarf að notast við beina rafhitun en verð fyrir húshitun með rafmagni hefur þó lækkað talsvert síðustu ár, m.a. vegna niðurgreiðslna á dreifi- og flutningskostnaði og aukinnar samkeppni á raforkusölumarkaði. Sú þróun hefur gert það að verkum að lægsti mögulegi kostnaður fyrir beina rafhitun er nú orðinn lægri en þar sem eru kyntar hitaveitur eða dýrar hitaveitur.

Lægsti húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareign er í Brautarholti á Skeiðum og á Seltjarnarnesi um 75 þ.kr. og þar næst á Flúðum 77 þ.kr. Hæsti húshitunarkostnaðurinn er í Grímsey um 246 þ.kr., þar sem er olíukynding. Þar fyrir utan er húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareign hæstur 232 þ.kr. á Höfn og í Nesjahverfi í Hornafirði og á Grenivík 231 þ.kr.

Heildarorkukostnaður
Heildarorkukostnaður, þ.e.a.s. raforku- og húshitunarkostnaður viðmiðunareignar, er hæstur í Grímsey 374 þ.kr. þar sem rafmagn er framleitt með díselrafstöð og húsin kynt með olíu. Þar fyrir utan er heildarkostnaður hæstur í Hornafirði, í Nesjahverfi 352 þ.kr. og á Höfn 333 þ.kr. Á Grenivík er heildarorkukostnaður viðmiðunareignar 332 þ.kr. og í Vestmannaeyjum er hann 325 þ.kr. Lægsti heildarorkukostnaður landsins er á Seltjarnarnesi 163 þ.kr. en þar næst á Flúðum 178 þ.kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir