Sigrún í aðalstjórn LH
Á landsþingi Landssambands hestamanna sem fram fór á Akureyri um helgina var Sigrún Kristín Þórðardóttir formaður hestamannafélagsins Þyts á Hvammstanga kjörin í aðalstjórn LH með 125 atkvæði en 9 einstaklingar gáfu kost á sér sem meðstjórnendur.
- Haraldur Þórarinsson, Sleipni var endurkjörinn sem formaður án mótframboðs.
- Gunnar Sturluson, Snæfellingi var kjörinn varaformaður án mótframboðs.
- Kosningu hlutu fimm eftirtalin:
- Sigurður Ævarsson, Sörla var áður í stjórn
- Oddur Hafsteinsson, Andvara var áður í stjórn
- Sigrún Kristín Þórðardóttir, Þyt ný í stjórn
- Þorvarður Helgason, Fáki nýr í stjórn
- Andrea M. Þorvaldsdóttir, Létti ný í stjórn