Styrkur til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
Forráðamönnum félaga-og félagasamtaka í Húnaþingi vestra er bent á að samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Húnaþings vestra frá 13. 12. 2007 þurfa þau félög og félagasamtök sem óska eftir styrk til greiðslu fasteignaskatts að sækja um á þar til gerðum eyðublöðum.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila á skrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga. Umsóknareyðublöðin má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins eða á heimasíðunni “hunathing.is”.