Styttist í að FoodSmart Nordic haldi á fjárfestihátíð Norðanáttar
Nú fer að styttast í fjárfestahátíð Norðanáttar sem haldin verður á Siglufirði þann 20. mars nk. Þar munu stíga á stokk átt fyrirtæki en eitt af þeim er fyrirtækið FoodSmart Nordic sem framleiðir hágæða vatnsrofið prótein úr sjávarfangi, m.a. kollagen og sæbjúgnaduft. Hráefnin sem þau nota koma úr nærumhverfinu sem styður við gæði, sjálfbærni og hringrásarhagkerfið og er það staðsett á Blönduósi og verður gaman að sjá hvernig þeim á eftir að ganga.
Á fjárfestahátíðinni kynna fyrirtækin átta verkefni sín sem snerta til dæmis orkuskipti, hringrásarhagkerfið, fullnýtingu auðlinda eða aðrar grænar lausnir fyrir fullum sal fjárfesta. Er þetta er einmitt vettvangur fyrir frumkvöðla sem leita eftir fjármagni og eru tilbúnir að fá fjárfesta að borðinu.Circula- Recoma gefur sorpi nýtt líf (Suðurland)
FoodSmart Nordic- FoodSmart Nordic framleiðir hágæða vatnsrofið prótein úr sjávarfangi, m.a. kollagen og sæbjúgnaduft. Fersk hráefnin koma úr nærumhverfi sem styður við gæði, sjálfbærni og hringrásarhagkerfið. (N-vestra)
Olavsdottir av Gørðum - Gestaverkefni frá Færeyjum
Humble - Minnkaðu matarsóun með humble! (Höfuðborgarsvæði og Sandgerði)
Circular Library Network - We provide infrastructure for municipalities and communities to manage and share items. (Höfuðborgarsvæði)
Nanna Lín - Nanna Lín varan er leður úr laxaroði í metravís, roðið er brotið niður og endurmótað í breiður áður en það er sútað yfir í leður. (N-eystra)
Surova - Making tech to grow veggies that are good for you and for the planet. (Höfuðborgarsvæði)
Skógarafurðir - Stækkun vinnslustöðvar fyrir umhverfisvænar íslenskar viðarafurðir (Austurland)

