Þjóðbúninga- og hestamannamessa í Staðarbakkakirkju

Þjóðbúninga- og hestamannamessa verður haldin í Staðarbakkakirkju í Miðfirði á þjóðhátíðardaginn 17. júní nk. kl. 11. „Eftir messu fara allir aftur á bak og halda sömu leið út á Hvammstanga endurnærðir á sál og líkama,“ segir á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts.  

Messan er sameiginleg fyrir Breiðabólsstaðar- og Melstaðarprestaköll og sóknarprestar beggja prestakalla þjóna í messunni. Þar munu félagar úr kór Melstaðar- og Staðarbakkasókna og kirkjukór Hvammstanga leiða sálmasöng undir stjórn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur organista.

Hestamenn leggja upp frá reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga kl. 9 árdegis og halda fram að Ósi og þaðan sem leið liggur Miðfjarðarárbakka fram að Staðarbakka. „Hestarnir eru geymdir í gerði við fjárhúsin á meðan sungin er messa og messukaffi drukkið sunnan undir kirkjuvegg,“ segir á heimasíðu Þyts.

 

 

Fleiri fréttir