Þjóðvegir á hálendinu - Morgunfundur Vegagerðarinnar

Vegagerðin stendur fyrir málþingi um þjóðvegi á hálendinu í beinu streymi í dag frá klukkan 9.00 til 12.30. Eitt af verkefnum Vegagerðarinnar samkvæmt samgönguáætlun 2020-2034 er að móta stefnu um hönnun vega á hálendi Íslands í samræmi við áherslur í landsskipulagsstefnu. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hún stígi nú sín fyrstu skref í þessa átt en vill fyrst af öllu heyra skoðun ólíkra hópa á málefninu. Hvernig þeir sjái fyrir sér vegi á hálendinu, hvar þeir eigi að vera, hvernig og hverjum þeir skuli þjóna.

Dagskrá:

9.00 Málþing hefst

  • Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar setur málþingið.
  • Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra, ávarpar þingið .
  • Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar.
  • Páll Gíslason staðarhaldari í Kerlingafjöllum.

10:00-10:15 Hlé

  • Ásdís Hlökk Theodórsdóttir forstjóri Skipulagsstofnunar.
  • Helgi Kjartansson oddviti Bláskógabyggðar.
  • Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður.
  • Gunnar Valur Sveinsson verkefnastjóri hjá SAF, Samtökum ferðaþjónustunnar.

11:15-11:30 Hlé

  • Snorri Ingimarsson og Hafliði Sigtryggur Magnússon frá 4x4.
  • Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.
  • Tryggvi Felixson formaður Landverndar.
  • Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir frá Vatnajökulsþjóðgarði.

12:00-12:30 Fyrirspurnir

Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar

Streymi:
Streymt verður á eftirfarandi slóð: https://vimeo.com/545466315

Spurningar:
Hægt er að spyrja spurninga í gegnum síðuna Sli.do með því að slá inn kóðanum: #halendi

Einnig er hægt að fylgjast með streymi hér að neðan:

 

Streymiskóði fyrir þá sem vilja streyma atburðinum:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir