Tilslakanir á sóttvörnum

Skíðasvæðum verur heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis. Mynd af FB síðu Skíðasvæðis Tindastóls.
Skíðasvæðum verur heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis. Mynd af FB síðu Skíðasvæðis Tindastóls.

Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 20 manns, hægt verður að hefja íþróttastarf, sund og heilsurækt með takmörkunum, sviðslistir einnig og skíðasvæðin geta opnað á ný. Þetta var tilkynnt í dag.

Á vef heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að í skólum breytist nálægðarmörk á öllum skólastigum úr 2 metrum í 1 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á ný.

„Þetta er megininntak tilslakana á sóttvarnareglum sem heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í dag og eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerðir um breytingarnar eru í vinnslu og verða birtar síðar í dag. Gert er ráð fyrir að þær gildi í 3 vikur,“ segir á stjornarradid.is.

Þar stendur einnig: „Í minnisblaði sóttvarnalæknis kemur fram að frá því að aðgerðir á landamærum voru hertar síðast, m.a. með kröfu um sýnatöku hjá börnum og ferðamönnum með vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu og auknu eftirliti með þeim sem dveljast í sóttkví eða einangrun, hafi daglegum smitum fækkað. Þannig hafi tekist að koma í veg fyrir stærri hópsýkingu eða útbreiðslu smita. Sóttvarnalæknir bendir þó á að ekki hafi tekist að uppræta veiruna úr samfélaginu. Áfram þurfi að viðhafa fyllstu aðgát vegna mikillar útbreiðslu í nálægum löndum og nýrra afbrigða veirunnar. Ýtrasta varkárni á landamærunum sé lykillinn á tilslökunum innanlands.

Staðan á sjúkrahúsum er góð, aðeins einn sjúklingur er inniliggjandi með COVID-19 og búið er að bólusetja langt yfir 90% þeirra sem eru 70 ára og eldri líkt og sóttvarnalæknir bendir á en hann leggur þó áherslu á að fara beri hægt í að aflétta takmörkunum meðan verið sá að ná góðum tökum á smitum á landamærum og fjölga í hópi bólusettra.“

Á vef heilbrigðisráðuneytisins má finna helstu breytingar á almennum samkomutakmörkunum sem eru eftirfarandi:
Í meginatriðum verður um sambærilegar takmarkanir að ræða á samkomum og giltu frá 5. febrúar síðastliðnum. Minnt er á mikilvægi þess að fólk gæti vel að sóttvörnum og fylgi reglum.
Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
Sund- og baðstöðum og heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, auk annarra skilyrða.
Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna með og án snertinga í öllum íþróttum heimilar, án áhorfenda. Hámarksfjöldi fullorðinna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu takmörkunum og í skólastarfi.

Skíðasvæðum heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis.
Sviðlistir, þar með talið kórastarf, heimilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitjandi gestum í hverju hólfi, auk annarra skilyrða.
Hámarksfjöldi við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga áfram 30 manns en fjölgar í 100 manns við útfarir.

Öllum verslunum heimilt að taka á móti 5 viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 manns, auk 20 starfsmanna í sama rými og viðskiptavinir.
Skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum heimilt að hafa opið með sömu skilyrðum og veitingastöðum þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar.
Verklegt ökunám og flugnám með kennara heimilt.

Breytingar í skólastarfi:
Heilbrigðisráðuneytið vinnur að gerð nýrrar reglugerðar um takmörkun á skólastarfi frá 15. apríl í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Í meginatriðum verða gildandi reglur óbreyttar nema hvað nálægðarmörk verða 1 metri í stað 2 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir