Tréiðnadeildin klæðir dæluhús
Nemendur í trésmíðadeild FNV hafa tvo síðastliðna fimmtudaga farið upp í Tindastól með það verkefni fyrir höndum að klæða dæluhús sem staðsett er efst í skíðabrekkunni.
Verkefnið var unnið fyrir Skíðdeild Tindastóls. Nemendur stóðu sig með prýði og tókst að klára að klæða húsið. Nemendur voru ferjaðir upp og niður brekkuna ýmist á jeppum, snjósleða eða hreinlega að þeir brugðu undir sig tveimur jafnfljótum. Ekki er alltaf hlýtt á toppnum og voru nemendur því fegnir að fá kakó og kleinur eftir erfiði dagsins.