Treystum á ferðaþjónustuna

Ferðaþjónustan á Norðurlandi hefur byggst upp á löngum tíma. Að uppbyggingunni hafa komið þrautseigir frumkvöðlar, hugsjónamenn sem hafa séð tækifæri til þess að byggja upp sitt samfélag, skapa tekjur og búa til ný störf. Á undanförnum árum hefur áherslan verið mikil á að gera ferðaþjónustu að heilsársatvinnugrein með aukinni markaðssetningu á vetrinum og stöðugri vöruþróun. Fyrirtækjum hefur fjölgað um allt land og fjárfestingar aukist en innviðauppbygging ekki haldið í takt við eftirspurn ferðamanna eftir heimsóknum á svæðið.

Staðan er því sú að enn starfar ferðaþjónustan á stærstum hluta landsins við þann veruleika að árstíðarsveiflan er gríðarleg. Á Norðurlandi kemur um 80% ferðamanna á tímabilinu frá maí til september. Hina sjö mánuði ársins er lítið að gera því ferðamenn eiga erfitt með að komast til mismunandi landshluta. Tekjurnar sem verða til þessa fimm mánuði háannatímans verða því að duga til þess að reka fyrirtækin allt árið.

Nú þegar er orðið ljóst að háannatíminn í ár tapast að stærstum hluta vegna áhrifa Covid-19 faraldursins. Rekstrartekjur fyrirtækja í heilt ár eru því litlar sem engar og ljóst að áhrifin á fyrirtækin, eigendur og starfsfólk verða gríðarleg.

Að sjálfsögðu er erfitt að koma að fullu leyti í veg fyrir neikvæð áhrif kreppu eins og nú stendur yfir og því ljóst að við munum sjá breytta mynd ferðaþjónustunnar þegar upp er staðið. Mikilvægt er þó að hafa í huga að þær aðgerðir sem gripið er til nú hafa mikil áhrif á það hver sú mynd verður. Það er nauðsynlegt að lágmarka skaðann og tryggja að við stöndum ekki uppi með landssvæði þar sem öll þjónusta hefur lagst af. Standa þarf vörð um fyrirtækin sem hafa byggt upp öflugan rekstur á undanförnum árum svo að ekki tapist öll viðskiptatengsl sem hafa verið byggð upp. Þegar opnast á ný fyrir ferðalög á milli landa stöndum við frammi fyrir harðari samkeppni en nokkru sinni fyrr þar sem þjóðir keppast við að laða til sín ferðamenn og flugsæti. Þar mun þekking og reynsla skera úr um hverjir ná árangri.

Aðgerðir til stuðnings ferðaþjónustufyrirtækjum þurfa að miða að því að koma fyrirtækjum í var fram að næstu háönn, tryggja rekstrarhæfi þeirra þannig að hægt verði að halda starfsfólki og vinna að vöruþróun, nýsköpun og markaðssetningu. Þannig verða öflugir ferðaþjónustuaðilar um allt land tilbúnir til að byggja á ný upp markaðinn svo íslensk ferðaþjónusta komist hratt og örugglega upp úr lægðinni. Með því að byggja á þeirri mikilvægu auðlind sem býr í fólkinu á bakvið ferðaþjónustuna verður Ísland mun samkeppnishæfara þegar ferðalög verða leyfð aftur og við eigum miklu meiri möguleika á að ná góðum árangri í baráttunni um að fá ferðamenn til Íslands.

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir