Umsjón hátíðarhalda á 17. júní 2024

Íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnaþings vestra auglýsir eftir aðila, félagasamtökum eða einstaklingum sem eru reiðubúnir að taka að sér umsjón með undirbúningi og framkvæmd hátíðarhalda á Hvammstanga á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2024.

Áhugasamir skili umsóknum þar um til Tönju Ennigarð, íþrótta- og tómstundafulltrúa tanja@hunathing.is eða skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 11. mars nk.

Í umsókn komi fram hugmyndir umsækjanda um dagskrá og annað er lítur að framkvæmd hátíðarhaldanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir