Unnið að gerð fjárhagsáætlunar

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir aðalsjóð og fyrirtæki sveitarfélagsins fyrir árið 2009.
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu eru félagasamtök og einstaklingar í Húnaþingi vestra er hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári bent á að senda skriflegar umsóknir þar um til sveitarstjóra. Umsóknum ber að skila fyrir 20. október nk.

Fleiri fréttir