VILT ÞÚ BÚA Í LANDI TÆKIFÆRANNA?

Vilt þú búa í landi tækifæranna - þar sem yfir 600 manns bíða áratugum saman á biðlista eftir húsnæði - en það er enginn heimskortur á byggingarefni, vinnufólki né peningum? 
Vilt þú búa í landi tækifæranna - þar sem fátækt eykst og fleiri þúsund manns eiga ekki fyrir mat út mánuðinn - samt er enginn skortur á matvælum í landinu?

Vilt þú búa í landi tækifæranna - þar sem örfáum einstaklingum er veittur einkaréttur á að veiða fiskinn okkar - samt er fiskurinn í eign þjóðarinnar?
Vilt þú búa í landi tækifæranna - þar sem gróðinn rennur í brjóstvasa útgerðarinnar, sem rær þar sem henni sýnist - án allrar skyldu við samfélagið sem skóp verðmætin?
Vilt þú búa í landi tækifæranna - þar sem þrælsóttinn ræður ríkjum og fólk á á hættu að missa eina atvinnutækifærið á staðnum ef það rífur kjaft - ella að flytja úr byggðalaginu?
Vilt þú búa í landi tækifæranna - þar sem verið er að svelta bændur með lágu afurðaverði - svo til verða fátækrahverfi í afskekktum sveitum landsins?
Vilt þú búa í landi tækifæranna - þar sem auðhringamyndun sogar allt vald og fjármagn til sín - svo eftir situr valdalaus almenningur og vonar að atvinnutækifærin rói ekki burt?
Vilt þú búa í landi tækifæranna - þar sem fólk á landsbyggðinni þarf að bíða í 4-6 vikur eftir að hitta heimilislækninn ?

Er þetta það líf í landi tækifæranna sem þú vilt fyrir þig og þína afkomendur?
Ef þú vilt ekki þetta líf sem þorra almennings stendur til boða í Sjálfstæðislandi tækifæranna - þá getur þú skipt um lögheimili með atkvæði þínu þann 25. september.

Þú getur valið - kynntu þér stefnu Sósíalistaflokksins þar blasa við tækifæri fyrir almenning - almenningur þarf ekki og á ekki að láta þetta tækifæri sem rennur upp á kjördag, framhjá sér fara. Kjósum Sósíalistaflokkinn sem tekur þarfir almennings fram yfir þarfir sérhagsmuna. Flytjum úr Sjálfstæðislandinu 25. september þar er einungis lífvænlegt fyrir fáa.

Helga Thorberg
Höfundur er í oddvitasæti Sósíalistaflokksins í Norðvesturkjördæmi

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir