100 milljónir af láni Sveitarfélagsins Skagafjarðar felldar niður
Samkvæmt frétt á vefmiðlinum Vísi.is og í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær hafa um 100 milljónir verið felldar niður af láni Sveitarfélagsins Skagafjarðar hjá Lánasjóði íslenskra sveitarfélaga. Dómur vegna málsins féll nýlega í Héraðsdómi Reykjavíkur og eru tvö svipuð mál fyrir dómstólum um þessar mundir. Ekki er ljóst hvort málinu verður vísað til hæstaréttar.
Forsaga málsins er sú að árið 2007 tók sveitarfélagið 115 milljón króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánið hækkaði talsvert í kjölfar efnahagshrunsins og hafði nærri tvöfaldast á fáeinum árum. Ágreiningurinn snérist um það hvort að sveitarfélagið hefði tekið lán sitt í erlendum gjaldmiðli eða íslenskum krónum bundið í erlendum gjaldmiðli. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að um ólögmætt gengistryggt lán hafi verið um að ræða og því hafi þurft að endurreikna lánið.
Haft er eftir Einari Huga Bjarnasyni hæstaréttarlögmanni að þarna muni rúmum 100 milljón krónum. Eftirstöðvar lánsamningsins samkvæmt lánasjóðnum voru taldar standa í rúmum 200 milljónum króna en niðurstaða dómsins er sú að eftirstöðvarnar eru rúmar 100 milljónir. Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri lánasjóðsins, vildi ekki tjá sig um málið, þegar vísir.is leitaði eftir því.. Ekki er búið að taka ákvörðun um það hvort að málinu verði vísað til Hæstaréttar.