112 dagurinn í Húnaþingi vestra

Í dag er einn einn tveir dagurinn að venju haldinn um allt land. Af því tilefni ætla viðbragðsaðilar í Húnaþingi vestra að efna til hópaksturs um Hvammstanga. Allir fá að fara með í bílana meðan pláss leyfir og verður lagt af stað í hópaksturinn frá Húnabúð –  slökkvistöð kl. 17:15, samkvæmt fréttatilkynningu frá Húnum.

Að þessu sinni endar hópaksturinn inn í reiðhöllinni Þytsheimum. Þar mun Rauði Krossinn afhenda skyndihjálparmanni ársins viðurkenningu, Húnar verða með klifurvegg fyrir ofurhuga sem allir geta spreytt sig á, ásamt því að búnaður og tæki verða til sýnis.

Þeir sem koma á 112 deginum í Húnaþingi vestra eru Björgunarsveitin Húnar, Brunavarnir Húnaþings vestra, Hvammstangadeild RKÍ, lögreglan á Blönduósi og sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Vesturland. „Endilega kíkið við þiggið kaffi og samfagnið deginum með viðbragsaðilum í Húnaþingi vestra,“ segir í fréttatilkynningunni.

Fleiri fréttir