1300 km lagðir að baki í Króksbrautarhlaupinu
Hið árlega Króksbrautarhlaup var háð síðasta laugardag en það markar lok sumarstarfs skokkhópsins á Sauðárkróki sem stafræktur hefur verið sl. 19 ár. Fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í hlaupinu og er heildar vegalengdin sem hlaupin, gengin eða hjóluð var rétt tæplega 1300 km. Þar af fóru bekkjarfélagar Selmu í 4. bekk GS 146 km ásamt foreldrum og systkinum þeirra.
Að sögn Árna Stefánssonar safnaðist dágóð upphæð sem mun örugglega koma sér vel. Hann segir að sá háttur hafi verið hafður á að gefa ekki upp hve mikið safnast hvert sinn en upphæðin er lögð inn á reikning í nafni skjólstæðingsins. Samnemendur Selmu í Árskóla og foreldrar þeirra stofnuðu söfnunarreikning sem er eftirfarandi:
0161-15-380360
Kt: 140479-5789