16 laxar úr Víðidalsá

Opnunarhollinu í Víðidalsá í Vestur-Húnavatnssýslu lauk um hádegi í gær. Þar komu á land sextán laxar og þó nokkrir sluppu af agni veiðimannanna. Töluvert ku vera af laxi í ánni og hafa þegar veiðst laxar á öllum helstu veiðisvæðum árinnar. Eru þeir á bilinu 80-90 cm langir, og sá stærsti hingað til er 94 cm hængur. Mikið er af laxi í Fitjá en ekki hefur gengið vel að setja í þá, sem er óvenjulegt á þessum tíma. Þetta kemur fram á vefnum Lax-á.is og þar er einnig hægt að ná sér í lausar stangir næstu daga, á tilboðsverði.

Fleiri fréttir