17. júní á Hvammstanga
17. júní hátíðahöldin á Hvammstanga verða á hátíðarsvæðinu sunnan við Félagsheimilið á Hvammstanga og hefjast þau klukkan 14:00. Á dagskrá verða hátíðarræða, ávarp fjallkonu, hjólböruboðhlaup, hjólabrautir fyrir yngstu kynslóðina og sápurennibraut.
Krakkar eru hvattir til að koma með hjólin með sér . Tvær sápurennibrautir verða í boði, önnur fyrir yngri krakka og hin fyrir þau eldri. Sjoppa verður opin meðan dagskráin varir. Til sölu verða kaffi og kleinur pylsur, svali og nammi. Einnig verða blöðrur og fánar til sölu í tilefni dagsins.
Undirbúningsnefnd hvetur íbúa Húnaþings vestra til að mæta og fagna þjóðhátíðardeginum og eiga saman góða stund í blíðskaparveðri.