17. júní á Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
16.06.2015
kl. 15.23
Hátíðarhöld fara fram á sunnan við Félagsheimilið á Hvammstanga á morgun í tilefni af lýðveldisafmæli Íslendinga og hefjast þau klukkan 14:00. Dagskráin hefst með hátíðarræðu og ávarpi fjallkonu.
Að því loknu verða boðnar til sölu grillaðar pylsur, hátíðarnammi og 17. júníblöðrur- og fánar. Opnað verður fyrir hina sívinsælu sápurennibraut klukkan 15:30 í Tommabrekku.
Því næst geta sápurennubrautargestir haldið áfram iðju sinni í nýju rennibrautinni í sundlauginni sem tekin verður í notkun þennan sama dag.
Áætluð dagskrálok eru klukkan 16:30.