22 tonna skurðgrafa á bólakaf

Á þriðjudag þegar verið var að leggja síðustu hönd á hitaveitulögn sem liggur yfir Húsabakkaflóann í Skagafirði og tengist lögn yfir Héraðsvötn og í Hegranes, vildi ekki betur til en svo að skurðgrafa verktakans sem sér um verkið, Steypustöð Skagafjarðar, sökk á bólakaf.

Að sögn Ásmundar Pálmasonar hjá Steypustöðinni var vélin í síðustu ferð sinni yfir flóann þegar óhappið varð. Hann hefur verið mjög erfiður yfirferðar vegna bleytutíðar undanfarnar vikur og fór svo að hann varð algerlega ófær vélinni sem vegur alls um 22 tonn. Fengnar  voru tvær öflugar vélar hjá Einari Val frá Ási og ein frá Akureyri til að freista þess að ná henni upp. Einnig var vatnadreki notadrjúgur en hann flýtur bæði á láði og legi. Ásmundur segir að eftir mikinn bardaga og mikið bras náðist vélin upp seint í gærkvöldi.

Eftir er að grafa fyrir lögninni yfir flóann og segir Ásmundur að til þess að þetta endurtaki sig ekki þá verði notaðir flekar undir vélina sem dreifir þunga hennar og heldur henni á floti.

Fleiri fréttir