314 milljón kr. afgangur hjá Svf. Skagafirði

Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2013 var tekinn fyrir á fundi sveitarstjórnar þann 30. apríl sl. Samkvæmt fundargerð námu rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 3.902 millj. króna af samstæðunni í heild. Þar af voru rekstrartekjur A-hluta 3.289 millj. króna en í A-hluta er aðalsjóður auk eignasjóðs og þjónustustöðvar. Í B-hluta eru veitustofnanir, hafnarsjóður, félagslegar íbúðir og Tímatákn ehf.

Í fundargerðinni kemur fram að rekstrargjöld samstæðunnar, að frátöldum afskriftum og fjármagnsliðum, voru 3.198 millj. króna, þar af A-hluti 3.012 millj. króna.

Rekstrarhagnaður A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 703 millj. króna, þar af er rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð fyrir afskriftir og fjármagnsliði um 277 millj. króna. Afskriftir eru samtals 142 millj. króna, þar af 79 millj. króna hjá A-hluta.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru hjá samstæðunni í heild samtals um 228 millj. króna, þ.a. eru 171 millj. króna fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur í A-hluta sveitarsjóðs. Rekstrarhagnaður A og B hluta á árinu 2013 er 314 millj. króna og rekstrarniðurstaða A hluta er jákvæð um 11 millj. króna.

Veltufé nam 529 millj. króna

Eignir Sveitarfélagsins Skagafjarðar A og B hluta voru í árslok samtals 6.995 millj. króna, þar af voru eignir A-hluta 5.222 millj. króna. Skuldir og skuldbindingar voru í árslok 2013 samtals 5.487 millj. króna, þar af hjá A-hluta 4.075 millj. króna. Langtímaskuldir námu alls 3.199 millj. króna hjá A og B hluta auk 321 millj. króna næsta árs afborgana. Eigið fé nam 1.508 millj. króna hjá samstæðunni í árslok og er eiginfjárhlutfall 22%. Lífeyrisskuldbindingar nema 879 millj. króna í árslok og hækkuðu á árinu um 48 millj. króna nettó.

Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 529 millj. króna, þar af er veltufé frá rekstri A-hluta 214 millj. króna. Handbært fé frá rekstri A og B hluta er 940 millj. króna. Fjárfestingahreyfingar námu á árinu 2013, 721 millj. króna, þar af námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 818 millj. króna á árinu 2013. Afborganir langtímalána umfram nýjar lántökur námu á árinu 2013 200 millj. króna, handbært fé lækkaði um 298 þús. króna á árinu og nam það 74 millj. króna í árslok.

Samkvæmt fundargerð var samþykkt með níu atkvæðum að vísa ársreikningi til síðari umræðu.

Fleiri fréttir