40 ára afmæli fagnað í Varmahlíðarskóla

Varmahlíðarskóli í Skagafirði fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Núverandi skólahúsnæði var tekið í notkun veturinn 1975-1976 og fyrsti árgangurinn því útskrifaður þaðan vorið 1976. Nemendur og starfsfólk skólans minnast tímamótanna í þessari viku, með þemadögum og opnu húsi þar sem gestum gefst tækifæri til að heimsækja skólann á morgun, fimmtudag, frá klukkan 15-18.
Feykir skrapp í Varmahlíðarskóla í byrjun vikunnar og fékk að fylgjast með því þegar afmælisundirbúningurinn var að fara af stað. Nánar er fjallað um sögu skólans og afmælið í 20. tölublaði Feykis sem kom út í dag.