600 ungmenni, leiðtogar og prestar í heimsókn á Hvammstanga - Myndir

Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar 2014 var haldið á Hvammstanga um helgina en þangað mættu rúmlega 600 unglingar, leiðtogar og prestar af öllu landinu til þess að fræðast, gleðjast og uppbyggjast í trú, von og kærleika. Dagskrá mótsins fór fram í íþróttahúsinu á Hvammstanga þar sem boðið var upp á kvöldvökur, hæfileikakeppni, búningaball og fræðslu.

Eftir hádegi á laugardaginn var mótið opið almenningi en þá var haldið karnival í Íþróttahúsinu. Meðal annars var hægt að sjá afrakstur hópavinnunnar og sjá leik,- söng- og dansatriði á sviði. Einnig var hægt að kaupa sér pylsu, pönnuköku eða vöfflu. Þá bauðst börnunum að föndra fara í andlitsmálun og leiki, fá gasblöðrur og popp.

Í hópastarfinu á laugardeginum var að hægt að kaupa bílaþvott við Söluskálann Hörpu. Allur ágóði af karnivali og hópastarfi rennur til styrktar alnæmisverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar.Lokamessa Landsmótsins var svo í Íþróttahúsinu á Hvammstanga á sunnudaginn. Hljómsveitin Sálmar sá um tónlistarflutninginn í messunni og leiddi kröftugan sálmasöng. Unglingar úr Æskulýðsfélagi Hvammstangakirkju fluttu tónlistaratriði. Sóknarpresturinn á Hvammstanga stýrði messu en sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup prédikaði.

Meðfylgjandi myndir sendi Anna Scheving til Feykis.

Fleiri fréttir