Á fjórða þúsund plöntur

Hópur ungmenna frá Blöndustöð Landsvirkjunar ásamt sjálfboðaliðum gróðursetti á fjórða þúsund kynbættar birkiplöntur í Brimnesskóga dagana 18.-20. júní síðastliðinn. Einnig var áburði dreift og girðing lagfærð eftir snjóþungan vetur.

Félag um endurheimt Brimnesskóga í grennd við Kolkuós í Skagafirði hefur til umráða um 23 ha lands sem er í eigu sveitarfélagsins Skagafjarðar. Við endurheimt hinna fornu Brimnesskóga eru eingöngu gróðursettar trjáplöntur, birki, reynir og gulvíðir sem eiga uppruna í Skagafirði frá öndverðu.

Gróðursettar hafa verið um 65.000 birki- og reyniviðarplöntur á undanförnum árum í það land sem félagið hefur til afnota.

Að sögn Steins Kárasonar framkvæmdastjóra Brimnesskóga eru trjáplönturnar nú óðum að vaxa úr grasi og framvinda verkefnisins að vonum. Fáist fjárframlög til verksins standa vonir til að unnt verði að ljúka gróðursetningu á næstu tveim til þrem árum.

Stjórn Brimnesskóga skipa Vilhjálmur Egilsson, Sölvi Sveinsson, Jón Ásbergsson, Stefán S Guðjónsson og Steinn Kárason.

 

Á myndum má sjá umhverfishóp frá Blöndustöð Landsvirkjunar ásamt framkvæmdastjóra Brimnesskóga.

 

Fleiri fréttir