Aðalfundur NFVH í dag
Aðalfundur Nautgriparæktarfélags Vestur-Húnavatnssýslu verður haldinn í félagsheimilinu Ásbyrgi í dag, þriðjudaginn 26. febrúar, kl. 12:15. Á fundinn mæta Baldur Helgi Benjamínsson framkvæmdastjóri LK. Guðný Helga Björnsdóttir varaformaður LK og Þórður Pálsson ráðunautur fer svo yfir skýrsluhald kúabænda 2012 o.fl.
Byrjað verður á súpu kl. 11:30. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.