Aðalfundur Öldunnar stéttarfélags
feykir.is
Skagafjörður
19.03.2014
kl. 14.57
Aðalfundur Öldunnar stéttarfélags verður haldinn á Mælifelli á Sauðárkróki klukkan 18 í dag, miðvikudaginn 19. mars. Reikningar ársins 2013 liggja frammi á skrifstofu félagsins að Borgarmýri 1. Á fundinum verða veitingar í boði félagsins og eru félagar hvattir til að mæta, í auglýsingu frá stjórn félagsins.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
- Fundarsetning
- Kosning fundarstjóra
- Skýrsla stjórnar fyrir árið 2013.
- Reikningar ársins 2013
- Stjórnarkjöri lýst
- Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og eins til vara
- Kosning annarra til stjórna, nefnda og ráða
- Kosning tveggja manna í kjörstjórn og tveggja til vara
- Ákvörðun félagsgjalda
- Kosning fulltrúa að ársfund Stapa lífeyrissjóðs
- Önnur mál