Aðalfundur Slysavarnardeildarinnar Káraborgar
Slysavarnardeild Káraborgar heldur aðalfund sinn miðvikudaginn 27. mars kl. 20.30. „Gerumst félagar í Svd. Káraborg og eflum slysavarna og björgunar mál. Hverju byggðarlagi er nauðsyn að hafa öfluga björgunarsveit til að leita til þegar vá ber að höndum. Svd. Káraborg er styrktaraðili Bjsv. Húna, með því að gerast félagi í Svd .Káraborg styrkjum við og eflum björgunarsveitina,“ segir í auglýsingu í Sjónaukanum.
Fundurinn fer fram í Húnabúð, Höfðabraut 30 á Hvammstanga. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.