Aðalfundur Þyts í kvöld

Aðalfundur Hestamannafélagsins Þyts verður haldinn í Þytsheimum á Hvammstanga í kvöld kl. 20:30. Á fundinum verður m.a. farið yfir skýrslu stjórnar og kosið í nýja stjórn.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1.     Kosning fundarstjóra og fundarritara

2.     Skýrsla stjórnar

3.     Lagðir fram reikningar félagsins

4.     Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga

5.     Árgjald

6.     Kosningar

a.     Kosning stjórnar

-         Formaður til tveggja ára

-         Einn meðstjórnandi til tveggja ára

b.     Tveir varamenn stjórnar til eins árs.

c.      Tveir skoðunarmenn til eins árs

d.     Tveir varamenn skoðunarmanna til eins árs

e.     Sex  fulltrúar á Héraðsþing USVH og sex til vara

7.     Önnur mál.

Fleiri fréttir