Aðalskipulag Húnaþings vestra kynnt
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
10.01.2014
kl. 08.30
Sveitarfélagið Húnaþing vestra boðar til kynningarfundar fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila um tillögu að Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026. Megin tilgangur fundarins verður að leita eftir ábendingum og athugasemdum og gefa íbúum og hagsmunaaðilum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sem snerta aðalskipulagið.
Á heimasíðu sveitarfélagsins eru íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn, sem haldinn verður í Félagsheimilinu á Hvammstanga næstkomandi fimmtudag kl. 17, og hafa þannig áhrif á það samfélag sem þeir búa í.