Aðeins færri safngestir 2011 en árið áður

Byggðasafn Skagfirðinga hefur gert upp árið á heimasíðu sinni en aðeins færri gestir létu sjá sig árið 2011 en árið áður. Á sýningum safnsins komu alls 31.300 manns, þar af heimsóttu 28.461 Glaumbæ og 2.839 í Minjahúsið á Sauðárkróki.

Glaumbær hefur löngum verið vinsæll áfangastaður ferðamanna á sýningunni í torfbænum er fjöldi muna sem flestir eru tengdir heimilishaldi og verklagi fyrri tíðar.

Í Minjahúsinu hafa verið nokkrar fastasýningar um árabil en sl. sumar voru opnaðar nýjar sýningar sem fjalla um þrjá einstaklinga sem ættir rekja til Sauðárkróks og Skagafjarðar eða hafa búið á svæðinu. Þau eru Jóhannes Geir Jónsson myndlistamaður sem er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki; tónlistarmaðurinn, tónskáldið og kórstjórinn Eyþór Stefánsson sem bjó og starfaði í Skagafirði allt sitt líf og svo Guðrún frá Lundi sem flutti á Sauðárkrók á fullorðinsárum og skrifaði allar sínar bækur þar.

 

 

Fleiri fréttir