Aðeins tveir höfðu áhuga
Umhverfis- og samgöngunefnd Skagafjarðar leitaði með auglýsingu nú í vor eftir hugmyndum frá íbúum á Sauðárkróki þess efnis hvernig þeir gætu séð umhverfi Sauðárinnar í framtíðinni.
Sveitastjórn hefur uppi hugmyndir um endurbætur og lagfæringar á þessu svæði í nánustu framtíð. Einungis bárust tvö svör við þessari málaleitan en sviðstjóra og garðyrkjustjóra hefur af nefndinni verið falið að vinna málið áfram. Nú þegar hafa verið unnar úrbætur uppi í Litla Skógi þar sem trjákurl hefur verið sett á göngustíga auk þess sem einn göngustígur hefur verið byggður upp með timburbraut. Það verður því spennandi að sjá hvernig þessi útivistarparadís Sauðkrækinga kemur til með að þróast á næstu árum.