Æfingatöflur fyrir körfuboltann líta dagsins ljós

Fyrstu drög æfingatöflu þeirra flokka sem taka þátt í Íslandsmótinu í vetur, hefur nú litið dagsins ljós hjá körfuknattleiksdeild Tindastóls. Í þessari viku verður æfingatafla míkró- og minniboltans sett saman samkvæmt heimasíðu félagsins.

Eins og venjan er með "drög" geta þau tekið breytingum í tímans rás en við vonumst eðlilega til þess að breytingin verði sem minnst. Þessi æfingatafla tók gildi frá og með gærdeginum, segja forráðamenn körfuboltans.

Æfingatafla míkró- og minniboltans verður sett saman nú í vikunni. Stefnt er að æfingum míkróboltans, 1. - 2. bekk, á Árvistartíma tvisvar í viku og æfingum minniboltans á góðum tímum.

Fleiri fréttir