Af kynjum og víddum … og loftbólum andans

Út er komin fyrsta ljóðabók Péturs Arnar Björnssonar frá Sauðárkróki Af kynjum og víddum … og loftbólum andans og flæða þar yrkisefnin milli himins og jarðar, frá fortíð til nútíðar. Allt frá unglingsárum hefur Pétur Örn, eða Össi eins og hann var kallaður á Króknum, fengist við ljóðaskrif og samhliða námi í menntaskóla og síðar bókmenntafræði skrifaði hann mikið af ljóðum og birtust nokkur þeirra í blöðum og tímaritum.

Ljóðaskrifin urðu strjálli með árunum en í kjölfar hrunsins haustið 2008 hófust þau aftur af fullum krafti. Nú, fimm árum síðar, fannst Pétri mál til komið að taka fyrsta þversnið í þann mikla ljóðahaug sem safnast hefur upp í gegnum árin og setja saman í bókarform.

Bókina er hægt að nálgast í Skagfirðingabúð, Verslun Haraldar Júlíussonar og Hlíðarkaupum og að sjálfsögðu í verslunum Eymundsson um allt land auk Iðu og Bókabúðar Máls og menningar á höfuðborgarsvæðinu.

Fleiri fréttir