Afgreiðslutími Flokku yfir hátíðirnar

Flokka á Sauðárkróki verður opin flesta daga fram að nýju ári svo rusl ætti ekki að safnast upp hjá fólki í Skagafirðinum yfir hátíðirnar. Þó er lokar á jóladag og annan jóladag. Á aðfangadag verður opið milli klukkan 9 og 12 og sömu sögu er að segja á gamlársdag.

Opið er aðra daga eins og venjulega en það er föstudagur frá kl. 9 – 17, laugardagur kl. 11 – 15, sunnudagur kl. 16 – 18 og milli klukkan 9 og 18 mánudaga – fimmtudaga.

Nánari upplýsingar á flokka.is.

Fleiri fréttir