Afmælistónleikar kirkjukórs Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
03.01.2014
kl. 11.24
Eins og greint hefur verið frá á Feykir.is átti kirkjukór Hvammstanga 70 ára afmæli á síðasta ári. Í tilefni af því bauð kórinn til tónleika í Hvammstangakirkju sl. föstudag. Með kórnum komu fram einsöngvararnir Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir og Ólafur E. Rúnarsson.
Pálína Fanney Skúladóttir stjórnaði og Elinborg Sigurgeirsdóttir sá um undirleik. Norðanátt tók myndir á tónleikunum, sem hægt er að skoða hér.