Áform um álver í Skagabyggð
Kínverskir aðilar vilja skoða uppbyggingu álvers við Hafursstaði í Skagabyggð, en frétt þess efnis sem birtist á Húnahorninu í gær staðfesti Valgarður Hilmarsson, forseti sveitarstjórnar Blönduósbæjar í samtali við mbl.is í morgun.
Á á vef Húnahornsins var greint frá því að Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi hefði kynnt hugmyndir um uppbyggingu álvers við Hafursstaði í Skagabyggð á héraðsfundi sveitarstjórna í Austur-Húnavatnssýslu, sem haldin var 3. júní síðastliðinn í Fellsborg á Skagaströnd.
Um er að ræða heildarfjárfestingu upp á 78 milljarða króna í fyrsta áfanga. Unnið hefur verið að verkefninu frá síðasta sumri og fyrirtækið sem kæmi að slíkri uppbyggingu sé kínverska fyrirtækið NFC. Er fyrirtækið á lista yfir 500 stærstu fyrirtæki heims.
Í kynningu Arnars kom fram að um væri að ræða framleiðslu á 120 þúsund tonnum af áli sem nýtt yrði til framleiðslu á stöngum og vír. Möguleiki væri að stækka álverið um önnur 120 þúsund tonn síðar. Starfsmenn í álverinu yrðu um 240 og önnur 200 störf yrðu í þjónustustörfum tengdu álverinu.
Einnig kom fram að orkuþörfin væri áætluð um 206 MW í fyrsta áfanga, heildarfjárfesting í fyrsta áfanga væri áætluð um 78 milljarðar og útflutningstekjur væru áætlaðar um 43 milljarðar á ári.
Í máli Arnars kom enn fremur fram að bygging álvers á svæðinu myndi hafa varanleg jákvæð áhrif á þróun byggðar á Norðurlandi og að stefnt sé að því að niðurstaða liggi fyrir í lok ársins um það hvort af verkefninu verði eða ekki.