Undirskriftasöfnun vegna laugar komin í gang

Þessi ágæta laug er engum til gagns ónotuð. Mynd: HMJ
Þessi ágæta laug er engum til gagns ónotuð. Mynd: HMJ

Feykir birti í gær mánudag frétt um fyrirhugaða lokun endurhæfingarsundlaugarinnar við heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Í sögu Feykis hafa fáar fréttir fengið meiri viðbrögð. Fólki í Skagafirði er greinilega ekki sama og hafa fjölmargir velunnarar laugarinnar stigið fram og lýst yfir óánægju sinni með fyrirhugaða lokun en hún á að vera liður í sparnaði og niðurskurði vegna hallareksturs HSN.

Við eftirgrennslan blaðamanns hefur komið í ljós að notkun laugarinnar hefur sannarlega ekki verið lítil. Fjölmargir nota aðstöðuna og sérstaklega yfir vetrartímann. Sem dæmi má nefna að rúmlega 50 konur í þremur hópum eru í sundleikfimi undir leiðsögn sjúkraþjálfara tvisvar í viku. Ungbarnasund fer fram í lauginni og er mjög vinsælt. Fatlaðir og Eldri borgarar sem eiga erfitt með að nota hefðbundnar sundlaugar nota laugina af þeirri einföldu ástæðu að þeir komast ekki hjálparlaust í og upp úr venjulegri sundlaug. Mjög margir eldri borgarar sem eru í dagvistun nota laugina. Árskóli hefur nýtt laugina fyrir börn með ýmsan sértækan vanda. Samkvæmt upplýsingum frá endurhæfingunni eru á milli 70 og 80 manns að nota laugina á dag flesta daga.

Núna hafa nokkrir velunnarar sett af stað undirskriftasöfnun til að hvetja stjórnendur HSN til að endurskoða þessa ákvörðun og leita leiða til að þessi nauðsynlega þjónusta megi lifa.
Smellið hér
Greinargerð með söfnuninni: „Þann 29.12.1999 var sundlaugin vígð. Á degi hverjum eru tugir notenda sem nýta sér þessa aðstöðu undir leiðsögn sjúkraþjálfara til endurhæfingar og þjálfunar eftir, veikindi, slys eða liðskiptaaðgerðir og til forvarnar skv.læknisráði. Verði sundlauginni lokað má gera ráð fyrir að álag og biðlistar hjá sjúkraþjálfurum lengist þar sem stór hluti þeirra sem nýta þessa aðstöðu þurfi þá að leita til þeirra. Um gildi hreyfingar er almennt viðurkennt að hún, bætir bæði líkamlega og andlega heilsu, eykur lífslíkur og virkar sem öflug forvörn gegn sjúkdómum. Nú er staðreyndin sú að flestir af þeim sem nota sundlaugina hafa ekki tök á að sækja sambærilega þjónustu annarsstaðar. Það er því afar mikilvægt að sundlaugin opni sem fyrst.” Vonum það besta. /hmj

Fleiri fréttir