Afrakstur Krafts til styrktar Magga

Í haust fór fram Útivistarsýningin Kraftur 2011 http://www.feykir.is/archives/43401 sem fram fór á Sauðárkróki. Á sýningunni var rekin sjoppa af sýningarhöldurum sem skilaði nokkrum hagnaði þar sem starfsmenn hennar gáfu vinnu sína  til góðra mála.

 

Á fimmtudaginn var afraksturinn, kr. 302.000-, afhentur Magnúsi Jóhannessyni sem slasaðist sl. vor. Magnús er nýkominn heim eftir hálfs árs dvöl í endurhæfingu á Grensás og við tekur nýtt hversdagslíf á Sauðárkróki. Segir hann það mikið gleðiefni að fjölskyldan væri sameinuð á ný. Magnús sagðist hrærður yfir samhug allra sem sýnt hefur þeim hjónum og fjölskyldunni stuðning og óskar öllum gleðilegra jóla.

Fleiri fréttir