Álagning fasteignagjalda í Skagafirði

Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar er sagt að Fasteignagjaldakröfur Sveitarfélagsins Skagafjarðar sé  hægt að greiða í heimabönkum.  Þar er fasteignaeigendum jafnframt bent á að notfæra sér beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum eða boðgreiðslur af greiðslukortum.

 

Í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins geta fasteignaeigendur:
Skoðað álagningarseðil fasteignagjalda fyrir árið 2012, eftir að álagning hefur farið fram.

  • Óskað eftir að fá sendan álagningarseðil.
  • Óskað eftir að greiða fasteignagjöldin með boðgreiðslu.
  • Óskað eftir að greiða öll fasteignagjöldin á einum gjalddaga þann 1. maí 2012.
  • Tilkynnt um breytingar er varða greiðslur og greiðendur á fasteignagjöldum.
  • Álagning - breytingar - innheimta

Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu berist til sveitarfélagsins eftir einhverri eftirtalinna leiða; í gegnum Íbúagáttina, símleiðis í síma 455-6000 eða með tölvupósti á netfangið  innheimta@skagafjordur.is

Álagningarseðill
Álagningarseðlar fasteignagjalda verða sendir til allra sem eiga lögheimili utan sveitarfélagsins og þeirra gjaldenda sem eru 65 ára og eldri. Þessir aðilar geta tilkynnt um ósk sína að fá rafræna útgáfu af álagningarseðli í  Íbúagátt sveitarfélagsins eða með símtali við afgreiðslu sveitarfélagsins.  Vinsamlegast  tilkynnið það sem fyrst.  Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgist rafræna útgáfu álagningarseðilsins í Íbúagáttinni og á vefsíðu island.is undir "Mínar síður".

Gjalddagar
Gjalddagar fasteignagjaldanna verða átta frá 1. febrúar til og með 1. september 2012. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 23.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2012. Hægt er að fá að greiða öll gjöldin á einum gjalddaga 1. maí 2012 séu þau jöfn eða umfram 23.000 kr. Sækja verður um það fyrir 23. janúar 2012.

Beingreiðslur
Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda.  Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost.  Engir greiðsluseðlar verða sendir til greiðenda.

Boðgreiðslur
Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda. Engir greiðsluseðlar verða sendir til greiðanda.  Sækja þarf um breytingu á greiðslumáta fyrir 23. janúar 2012.  Vinsamlegast notið VISA boðgreiðsluhnappinn á heimasíðunni eða veljið hér.

Greiðsluseðlar
Innheimtur greiddar með heimsendum greiðsluseðlum.  Hvatt er til þess að aðrir greiðslukostir séu notaðir.

Elli- og örorkulífeyrisþegar
Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega eru reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2011 vegna tekna ársins 2010.  Hámarks afsláttur í upphafsálagningu er 25.000 kr. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2012 vegna tekna ársins 2011 er lokið. Getur það leitt til inneignar eða skuldar viðkomandi eftir því sem við á. Skilyrði til lækkunar fasteignaskatts er að viðkomandi elli- eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í sveitarfélaginu, búi í eigin íbúð og sé 67 ára á árinu eða eldri eða hafi verið úrskurðaður 75% öryrki. Afsláttur nær eingöngu til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í. Afslátturinn er tekjutengdur og er að hámarki kr. 50.000.  Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2012.

Tekjumörkin eru sem hér segir:

Fyrir einstaklinga:
    a) með tekjur allt að kr. 2.300.000 fullur afsláttur sbr. hér að ofan.
b) með tekjur yfir kr. 3.100.000 enginn afsláttur.

Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
    a) með tekjur allt að kr. 3.100.000 fullur afsláttur sbr. hér að ofan.
b) með tekjur yfir kr. 4.200.000 enginn afsláttur.

Ef tekjur eru á framangreindu bili er veittur hlutfallslegur afsláttur. Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt.

/Skagafjörður.is

 

Fleiri fréttir