Álagningu fasteignagjalda 2012 lokið

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Skagafirði árið 2012 er lokið og geta allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Greiðsluseðlar vegna fasteignagjaldanna birtast í heimabönkum í vikunni og í kjölfarið berast þeir líka þeim sem óskað hafa eftir að fá þá heimsenda.

Í ár eru álagningarseðlar sendir í pappírsformi til þeirra greiðenda sem ekki eiga lögheimili í sveitarfélaginu og svo til þeirra sem eru eldri en 65 ára og eru með lögheimili í sveitarfélaginu. Álagningarseðlarnir verða póstlagðir næstu daga.

Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt vegna elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða og miðað er við tekjur ársins 2010. Þegar álagning 2012 vegna tekna ársins 2011 liggur fyrir næsta haust verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á.  Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum.

Fleiri fréttir