Allra heilagra messa í Glaumbæjarkirkju
feykir.is
Skagafjörður
01.11.2013
kl. 08.41
Sunnudaginn 3. nóvember verður haldin Allra heilagra messa í Glaumbæjarkirkju í Skagafirði. Guðsþjónustan hefst kl. 14.00 en barn verður borið til skírnar og kveikt á kertum í minningu látinna. Þá verður kirkjukaffi í boði eftir messu. Fyrr um morguninn eða klukkan 11.30 hefst Sunnudagaskóli á Löngumýri.
Vegna mistaka fór auglýsing þessa efnis ekki í Sjónhornið og er beðist velvirðingar á því.