Alltaf gaman í Víðidalstungurétt - Myndir

Síðastliðna helgi var mikil stemning í einni stærstu stóðrétt landsins, í Víðidal í Húnaþingi. Á föstudeginum kom stóðið af Víðidalstunguheiði og því smalað til byggða en einatt er mikill fjöldi fólks sem fylgir því síðasta spölinn til réttar. Á laugardag var svo réttað í sól og svala og hinir hefðbundnu viðburðir að sjálfsögðu á sínum stað þ.e. happdrætti, sölutjaldi og veitingarnar í réttarskúrnum. Anna Scheving á Hvammstanga leit við með myndavelina og sendi Feyki afraksturinn.

.

Fleiri fréttir