„Allur kostnaður skellur á okkur!“

Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli mætir liði KR í úrslitaleik á morgun, föstudaginn 9. maí nk. Leikurinn hefst kl.19 og verður spilaður á KR vellinum.

Mikil óánægja er með valið á vellinum á meðal leikmanna og stuðningsmanna Tindastóls. Rætt er við Sunnu Björk Atladóttur, leikmann Tindastóls og Gísla Sigurðsson í meistaraflokksráði kvenna hjá Tindastóli í Feyki þessa vikuna.

Sunna Björk segir þetta auðvitað fáránlegt því þarna er um að ræða úrslitaleik.

- Ég veit svo sem að það er ekki hlaupið að því að mæta liði frá höfuðborgarsvæðinu á miðri leið en eitt er víst að heimavöllur KR er ekki á milli Vesturbæjarins og Sauðárkróks! Segir Sunna.

Gísli tekur í sama streng og segir þetta einnig rosalega mikinn kostnað fyrir félagið, en KR-ingar hafa spilað alla sína leiki í Reykjavík það sem af er tímabilinu.

–Stelpurnar okkar eru búnar að fara tvisvar í Bogann, suður, Úlfarsdalinn og eru núna settar á heimavöll KR í úrslitaleik, þetta er bara ósanngjarnt, segir Gísli.

 

Fleiri fréttir