Alþýðuóperan fer á flakk með Ráðskonuríki

Alþýðuóperan bregður á næstunni undir sig betri fætinum og fer á flakk með létta og skemmtilega sýningu sem ber heitið Ráðskonuríki, og verður hún m.a. sýnd á Sauðárkróki. Um er að ræða gamansama óperu sem sungin er á íslensku og hægt er að njóta yfir hressandi veitingum á bar.

Sýningin var áður sýnd á Rósenberg í Reykjavík, en nú fer Alþýðuóperan á flakk og sýnir á Sauðárkróki, Akranesi, Borgarnesi og Selfossi. Sýningin á Sauðárkróki verður föstudaginn 9.ágúst á Mælifelli kl.20. Einnig verður sýnt á elliheimilinu sama dag fyrir heimilismenn þar, en það er hluti af stefnu Alþýðuóperunnar að koma með óperuna til almennings, bæði það að fara í þennan túr út á land og eins að fara með sýninguna inn á sjúkrahús og stofnanir.

Ráðskonuríki er sett upp af Alþýðuóperunni, sem er sjálfstætt íslenskt óperufélag, sem vill vekja áhuga almennings á óperum.  Aðalatriði sýningarinnar er tónlistin og er öll umgerð sýningarinnar er smá í sniðum; í hverri sýningu tveir söngvarar, einn leikari og einn gítarleikari, sem er mjög óvenjulegt fyrir óperur.

Tónlistarsjóður og Menningarráð Norðurlands Vestra styrkja þessar sýningar á Sauðárkróki.

 

Fleiri fréttir