Ánægja með ákvörðun ráðherra að flytja ekki hringveginn

Bæjarráð Blönduósbæjar hefur lýst ánægju sinni með ákvörðun innanríkisráðherra að flytja ekki hringveginn frá Blönduósi yfir á Svínvetningabraut eða til suðurs frá Varmahlíð. Málið var til umræðu á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar þann 9. janúar sl.

Stjórn SSNV barst bréf frá Innanríkisráðherra þann 28. nóvember sl. og í bréfinu segir:

„Ég vil upplýsa, í framhaldi af þeim skoðanaskiptum sem fram fóru á fundinum varðandi val á vegstæði þjóðvega, að í tillögum mínum að tólf og fjögurra ára samgönguáætlunum sem lagðar verða fram á Alþingi innan skamms, er hvorki gerð tillaga um flutning á hringveginum frá Blönduós yfir á nýja Svínvetningabraut né flutning hans til suðurs frá Varmahlíð. Ég lít svo á flutningur hringvegarins á þessum stöðum eigi ekki vera viðfangsefni skipulagsyfirvalda nema sveitarfélögin sjálf óski eftir því.“

Stjórn SSNV hefur einnig lýst ánægju sinni yfir ákvörðun innanríkisráðherra og óskað eftir því bréfleiðis við forsætisráðherra að skipaður verði starfshópur um stöðu Norðurlands vestra.

Fleiri fréttir