Árshátíð á Borðeyri
Fimmtudaginn 7. nóvember héldu nemendur í skólahúsinu á Borðeyri árshátíð sína með söng, leik og dansi og eins og vera ber voru foreldrar, systkini, afar og ömmur mætt til að hlusta og horfa á börnin. Á Borðeyri er samrekinn grunn- og leikskóli með 16 börnum á aldrinum 2 ára til 10 ára og stigu allir nemendur skólans á svið.
Hófst dagskráin á því að nemendur grunn- og leikskólans fluttu ljóðið Sprett eftir Hannes Hafstein. Þar sem við erum svo heppin í okkar fámenna skóla að hafa menntaðan tónmenntarkennara, hana Elinborgu Sigurgeirsdóttur, setti það auðvitað sinn svip á hátíðina. Yngstu nemendurnir sungu og léku „Dúkkan hennar Dóru" við undirleik Elinborgar og undir stjórn Þórunnar Helgu leikskólakennara og deildarstjóra á Borðeyri og stóðu þau sig mjög vel og fengu mikið lófaklapp í lokin. Elstu nemendurnir sögðu brandara og lögðu gátur fyrir gestina sem reyndust miserfiðar. Allir nemendur sungu svo saman söngva um dýrin við undirleik Elinborgar.
Þá var komið að leikþætti undir stjórn Katrínar grunnskólakennara sem allir nemendur skólans tóku þátt í en hann heitir: „ Dýrin spjalla“. Hann inniheldur m.a. upplýsingar um fæðu dýranna, húsakost, hvernig þau vilja láta koma fram við sig og nokkur ljóð eftir okkar helstu ljóðskáld. Varla þarf að nefna að þetta gerði allt mikla lukku og sýndu nemendur skemmtilega tilburði í flutningi textans.
Árshátíðinni lauk með því að nemendur grunnskólans sýndu skoskan dans sem þau höfðu æft. Fengu þau síðan alla út á gólf með sér og reyndu að kenna þeim sporin sem vakti mikla kátínu þar sem þeir eldri voru misfimir.
Að dagskrá lokinni var svo kaffi í boði foreldra þar sem borðin svignuðu undan kræsingum að venju.
Ánægjulegur dagur í alla staði þar sem margir litlir og stórir sigrar voru unnir.
Katrín Kristjánsdóttir