Árshátíð Hvells 14. mars

„Ágætu Hvellfélagar og annað dansáhugafólk. Höldum árshátíð og 30 ára afmælis minnst í Ljósheimum laugardagskvöldið 14. mars,“ þannig hefst auglýsing frá Hvelli en þar verður matur, söngur, glens og gaman.

Borðhaldið hefst stundvíslega kl. 19. Dans að loknu borðhaldi.

Miðaverð 4000 kr. og tekið er fram að kort séu ekki tekin. Miðapantanir berist fyrir þriðjudagskvöldið, 10. mars, sí símum 453 8187 (Helga) og 453 8340 (Valdís.).

„Mætum vel og tökum með okkur gesti. Góða skemmtun,“ segir loks í auglýsingunni.

Fleiri fréttir