Árshátíð Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og Rökkurkórsins í Skagafirði
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og Rökkurkórinn í Skagafirði mun halda sameiginlega árshátíð í Húnaveri þann 7. janúar nk. kl. 20:30. Vinir og velunnarar kóranna eru hvattir til að fjölmenna og fagna nýju ári með kórfélögum.
Á árshátíðinni verður boðið upp á söng, gamanmál og veislumáltíð að hætti Húnavers. Geirmundur Valtýsson leikur fyrir dansi sem hefst um kl. 23.
Miðaverð á árshátíðina er 5000 kr. en einnig er hægt að mæta á ballið kostar þá miðinn 1500 kr. Skráningar til þátttöku þurfa að berast fyrir 5. janúar nk. til eftirfarandi aðila:
- Péturs Péturssonar, símar 452-4349/864-4349 netfang: holabaer@emax.is ,
- Þorleifs Ingvarssonar, símar 452-7150/893-4006 netfang: solheim@emax.is ,
- Valborgar Hjálmarsdóttur símar 453-8108/869-8108 netfang: valborgjh@simnet.is